Nýjir tímar í Kópavogi
Nýr meirihluti tók formlega við stjórnartaumunum í Kópavogi 14. febrúar. Framsóknarflokkur, Listi Kópavogsbúa og Sjálfstæðisflokkur mynda hinn nýja meirihluta.
Framsóknarmenn höfðu fyrir sitt leyti samþykkt fyrirhugaðan málefnasamning á fjölmennum fundi fulltrúaráðs framsóknarfélaganna fimmtudaginn 9. febrúar.
Ekki þarf að fara mörgum orðum um atburðarásina á undanförnum vikum, svo mikið hefur verið fjallað um hana á síðum dagblaða og öldum ljósvakamiðla.Það sem stendur þó upp úr er hversu vel framsóknarmenn, með Ómar Stefánsson í broddi fylkingar, héldu á málum þessar vikur. Það var aldrei lokað á neina möguleika og aldrei talað illa til eða um aðra flokka né einstaklinga. Því miður voru sumir með ótímabærar yfirlýsingar og jafnvel heitingar í fjölmiðlum sem er afar óviðeigandi.
Framsóknarmenn munu láta að sér kveða í því samstarfi sem nú fer í hönd. Fulltrúar flokksins flokksins í nefndum og ráðum munu leitast við að sinna störfum sínum af kostgæfni og leggja fram tillögur bænum og bæjarbúum til heilla.
February 16, 2012
Hádegisverðarfundur á Hótel Borg 9. febrúar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson alþingismaður og formaður Framsóknarflokksins býður til opins stjórnmálafundar í Reykjavík fimmtudaginn 8. febrúar, kl. 12:00 á Hótel Borg.
Að lokinni framsögu Sigmundar Davíðs gefst tími fyrir fyrirspurnir og umræður um málefni eins og sku…ldamál heimila og fyrirtækja, afnám verðtryggingar, Evrópusambandsumsóknina og framtíðarsýn fyrir Ísland.
Hótel Borg býður fundargestum upp á súpu og brauð á vægu verði á meðan á fundinum stendur.
Fundurinn er að sjálfsögðu öllum opinn og eru fundarmenn sérstaklega hvattir til að taka með sér gesti.
February 7, 2012
Af miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins
Fjölmargir miðstjórnarmenn úr Kópavogi mættu til miðstjórnarfundar Framsóknarflokksins sem að þessu sinni var haldinn á Hótel Borgarnesi um nýliðna helgi, 24. og 25. nóvember 2011. Sérstök ráðstefna um byggðamál var haldin fyrri daginn áður en miðstjórn kom saman.
Skemmst er frá því að segja að ráðstefnan var afar vel heppnuð og erindi framsögumanna fróðleg og umræður gagnlegar, öllum þeim sem láta sig þjóðmál varða. Fundur miðstjórnar var einnig góður og hópavinna sem farið var í sérlega áhugaverð og skilaði mörgum nýjum hugmyndum til að vinna úr í nánustu framtíð.
Bæjarfulltrúinn okkar í Kópavogi, Ómar Stefánsson, hélt á lofti mikilvægi þess að auka hlut sveitarstjórnarstigsins í stjórnsýslunni og afla fjármagns til þess með tengingu við skattstofna. Almennt voru fundarmenn á þeirri skoðun að skynsamlegt væri að efla sveitarstjórnarstigið og þar með nærþjónustu við íbúa.
November 27, 2011
Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2012
Meirihlutinn í Kópavogi óskaði eftir því á dögunum að framsóknarmenn kæmu að gerð fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár. Óskin kom eilítið á óvart þar sem sjálfstæðisflokknum var ekki boðin þátttaka svo vitað sé. Eftir fundarhöld um óskina var ákveðið að aðstoða meirihlutann í fjárhagsáætlunarvinnunni enda okkar maður í bæjarstjórn, Ómar Stefánsson, öllum hnútum kunnugur.
Aðkoma framsóknarmanna er þó háð því að skynsamlega verði haldið á málum og ekki vikið frá þeirri stefnu sem mörkuð hefur verið á undanförnum árum og gert Kópavog að eftirsóknarverðum stað til að eiga heimili og stunda atvinnurekstur. Frekari frétta er að vænta á næstu vikum en stefnt er að því að fjárhagsáætlunin verði lögð fram fyrir jól.
November 23, 2011
Góður fundur með formanninum
Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna í Kópavogi stóð fyrir opnum fundi með Sigmundi Davíð, formanni flokksins, að Digranesvegi 12, fimmtudagskvöldið 31 mars. Formaðurinn fór yfir stöðuna í stjórnmálunum og hugsanlegar kosningar. Einnig ræddi hann um flokksþingið framundan og lagði sérstaklega áherslu á atvinnumálin, þar þyrfti að lyfta grettistaki á næstu misserum. Að því loknu tóku við umræður. Fjölmargar fyrirspurnir bárust frá fundarmönnum til formannsins. Má þar nefna: hlutverkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga, evrópusambandsmál, Icesave, skuldir þjóðarinnar, tækifæri til framtíðar, vaxtamál, sjávarútvegsmál og margt fleira.
Sigmundur Davíð svaraði öllum fyrirspurnum greiðlega og spunnust oft áhugaverðar umræður í framhaldinu. Létt var yfir fundarmönnum þrátt fyrir erfitt ástand á þjóðarbúinu. Formaðurinn jafnt sem fundarmenn voru sammála um að tækifæri væru til sóknar. Hins vegar væri ljóst að núverandi ríkisstjórn gæti ekki leitt þá vinnu, þar ríkti sundrung og kjarkleysi til ákvarðanatöku.
April 1, 2011
Frá aðalfundi Framsóknarfélags Kópavogs
Umræður voru líflegar og mæting þokkaleg á aðalfundi Framsóknarfélag Kópavogs sem haldin var þriðjudaginn 29 apríl að Digranesvegi 12. Ragna Ívarsdóttir, formaður, gaf ekki kost á sér til áframhaldandi formennsku.
G. Valdimar Valdimarsson var kosinn formaður. Aðrir í stjórn voru kosnir Andrés Pétursson, Helgi Þór Jónasson, Kristinn Dagur Gissurarson og Sveinn Sigurðsson.
Þess má geta að stjórnin hélt sinn fyrsta formlega fund fimmtudaginn 31 mars og skipti með sér verkum. Auk þess var unnið í undirbúningi vegna flokksþings sem haldið verður 8 – 10 apríl næstkomandi.
April 1, 2011
Opinn fundur með Sigmundi Davíð í Kópavogi
Haldinn verður opinn fundur með Sigmundi Davíð Gunnlaugsyni, formanni Framsóknarflokksins, að Digranesvegi 12 í Kópavogi, fimmtudaginn 31. mars kl. 20.00.
Sigmundur Davíð fjallar um skuldamál heimilanna, Icesave, aðgerðir í atvinnumálum og stjórnmálaástandið í dag.
Allir velkomnir,
Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna í Kópavogi
March 30, 2011
Aðalfundur Framsóknarfélags Kópavogs
Boðað er til aðalfundar Framsóknarfélags Kópavogs þriðjudaginn 29. mars n.k. kl. 20.00 að Digranesvegi 12 í Kópavogi.
Dagskrá fundarins – Drög
1. Skýrsla formanns
2. Reikningar félagsins lagðir fram
3. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga
4. Kosningar:
•Kosning formanns
•4ra aðalmanna í stjórn
•3ja varamanna í stjórn
•2ja skoðunarmanna reikninga
•Kosning aðal- og varamanna í Fulltrúaráð framsóknarfélaganna í Kópavogi
•Kosning aðal- og varamanna á 31. flokksþing framsóknarmanna sem haldið verður 8.-10. apríl 2011 á Hótel Sögu
•Kosning aðal- og varamanna á Kjördæmisþing Framsóknarmanna í Suðvesturkjördæmi fyrir 2011
5. Önnur mál
Þeir félagsmenn sem eiga ekki heimangengt á aðalfundinn en óska eftir því að verða fulltrúar á flokksþingi eru vinsamlega beðnir um að senda póst á Rögnu Ívars. ragnaivars@gmail.com eða Svein Sigurðsson sveinn@fonix.is.
March 27, 2011
Hundaleikvöllur í Kópavog

Í fjölmiðlum hefur nokkuð verið rætt um lausagöngu hunda, en samkvæmt reglum eiga hundar ekki að ganga lausir í þéttbýli. Sem betur fer virða flestir hundaeigenda þessa reglu, en alltaf eru einhverjir sem sleppa eða missa hunda sína lausa.
Það er staðreynd að sumir eru hræddir við hunda og einnig eru aðrir sem eru hræddir um hundana sína fyrir öðrum hundum. Að mínu mati væri því mikilvægt að í Kópavogi yrði skipulagt svæði, nokkurskonar , hundaleikvöllur og höfum við framsóknarmenn sett slíkan leikvöll í stefnuskrá okkar fyrir komandi kosningar.
Lesa meira
May 26, 2010
Metnaðarfull stefnuskrá Framsóknar
Ljóst er að trúnaðarbrestur hefur orðið á milli stjórnmálamanna og kjósenda í landinu. Hrun íslenska efnahagskerfisins leiddi meðal annars í ljós að kjörnir fulltrúar þjóðarinnar sváfu á verðinum og brugðust eftirlitshlutverki sínu. Árangur ,,Besta Flokksins” í skoðanakönnunum í Reykjavík sýnir best þá miklu gjá sem hefur myndast milli kjósenda og stjórnmálaflokkanna í landinu. Mikið verk er því framundan hjá okkur sem sækjust eftir umboði almennings til að stýra sveitarfélaginu að sýna fram á við séum traustsins verð.
May 20, 2010





